Þetta er mergjuð súpa. Ég geri hana alltaf tvöfalda því hún klárast eiginlega alltaf og svo getur maður fryst. Þetta er líka kjörið til að nýta afgangs kjúkling og hrísgrjón. Líka æðisleg veikindasúpa. Holl, einföld og bragðgóð
Mulligatawny (indversk naglasúpa)
2 dl rauðar linsur
1 lítri grænmetis eða kjúklingakraftur
skvetta af túrmerik
5 hvítlauksrif
skvetta af kóríanderdufti
2-3 cm engifer
1 msk kúmínduft
smá af cayenne pipar
olía
salt og pipar
2 dl afgangs kjúklingur eða hrísgrjón (eða bæði)
2 msk sítrónusafi
1 dl kókósmjólk
1) skola linsur og sjóða í krafti ásamt turmerik í 30 mín
2) Hakka saman hvítlauk og engifer (ég geri það í töfrasprotanum en það er sjálfsagt líka hægt að gera það með raspara eða blandara) . Blanda smá vatni saman við þannig að það verði svona "paste". Steikja maukið á pönnu í olíu ásamt hinum kúmín, kóríander og cayenne í svona 2 mínútur.
3) Blanda maukinu saman við súpuna. Bæta við kjúkling / grjónum og láta suðu koma upp. Bæta við kókosmjólk og sítrónusafa. Salt og pipar eftir smekk
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Eldaði þessa súpu í gær. Einföld og fljótleg í undirbúningi (okkar linsur suðu á 15mín) og vorum við hjón sammála um að hún væri mjög bragðgóð. Næst mun ég sennilega bæta við einhverju grænmeti, fannst vanta meira "texture".
Post a Comment