Þetta brauð fékk ég hjá mömmu Önnu vinkonu í sveitinni. Ég veit ekki hvort það var stemningin að sitja úti á palli á yndislegum sumardegi í Finnlandi og borða, en þetta var bara besta brauð sem ég hef smakkað. Á reyndar eftir að baka það aftur. En hér kemur uppskriftin:
5 dl volgt vatn
50 gr (1 pakki blautger) ger
sýróp
Blanda þessu saman í skál og láta standa í smá tíma og freyða
Blanda síðan saman við maukið:
Raspaðar gulrætur (u.þ.b 5 litlar gulrætur).
2 lófar sólblómafræ
2 lófar sesamfræ
2 lófar valmúafræ - eða sjálfsagt bara hvað sem er
Um 10 dl hveiti (það má vera hvetiblanda)
Olífuolía (um 1-2 dl)
*Blandan er þá frekar blaut. Hún þarf eiginlega að vera eins blaut og hægt er að vera - samt nógu þurr til að hægt sé að hnoða deigið og búa til bollur úr því. Þið finnið það út með hveitinu og olíunni.
*Hnoða duglega og láta standa í 30 mínútur
*Búa til bollur, rúlla þeim uppúr hveiti og sesamfræjum, og leggið á bökunarplötu
*Láta hefast í 1-2 klukkutíma
Baka við 225 gráður í um hálftíma
Og hér kemur punkturinn yfir i-ið: Þegar platan er tekin úr ofninum, leggið þykka ábreiðu (t.d. eins og 2 þykk handklæði) yfir brauðið og látið það jafna sig. Þannig verður það dúnmjúkt að innan með yndislegri crispy skorpu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Er þetta ekki mjög stór uppskrift? 2 brauð?
Þetta eru sko bollur. Jú, frekar stór uppskrift en ekkert viðbjóðslegt 10 dl hveiti er rétt rúmur líter af hveiti. Þetta eru kannski svona 20-25 bollur. Svo frystir maður restina..
Thu ert alger frysti-kelling. Hefurdu sed frystinn okkar ;) List reyndar storvel a braudbollurnar og aetla jafnvel ad baka i kvold.
luvja
T
Thu ert alger frysti-kelling. Hefurdu sed frystinn okkar ;) List reyndar storvel a braudbollurnar og aetla jafnvel ad baka i kvold.
luvja
T
Smá ábending. Ég gerði bollurnar. Þær voru alveg delicious og ekkert ógeð mikið. Bara ein ofnplata. EN ég myndi bæta við í uppskriftina smá salti. Og svo notaði ég hörfræ í staðinn fyrir valmúafræ. Eins og ég segi, þá má ábyggilega fikra sig áfram með það.
Post a Comment