Saturday, February 3, 2007

Rúllubrauð með pestóblöndu

1 rúllutertubrauð

1 krukka grænt pestó
100g skinka, skorin í smátt
50g svartar ólífur, saxaðar
50 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 mozzarella-ostakúla, skorin í bita
4 msk + parmesanostur, rifinn
pipar

4 msk parmesanostur, rifinn til að setja ofan á.

Blandið saman pestói, skinku, ólífum, tómötum, hvítlauk, mozzarellaosti og 4msk af parmesanosti. Piprið eftir smekk.
Smyrjið blöndunni á brauðið og rúllið því upp. Stráið rifnum parmesanosti yfir.
Bakið við 180°C í 1-15 mínútur.

3 comments:

Sigrun said...

Æ, svona rúllutertubrauð eru alltaf svo notaleg. Ég bara hreinlega veit ekki hvort slíkt fáist hérna í Suomi. Sást þú einhvern tíma svoleiðis þegar þú bjóst hérna Þurý?

thury said...

Nei veistu, rúllutertubrauð virðast vera séríslenskt fyrirbæri. En ég gerði þennan rétt bara beint í eldfast mót með skorpulausum fransbrauðssneiðum. Þá gerir maður nokkrar umferðir: brauð - fylling - brauð - fylling. Ágætt að bleyta aðeins í brauðinu með aspasvökva eða sveppavökva úr dós. Kom rosa vel út og fólk var brjálað í þetta.

María said...

Umm þetta er örugglega jammí jammí. Við þurfum að fara að hafa svona saumaklúbba svo að maður geti haft svona rétti.... heheh