Monday, February 26, 2007

Satay kjúklingasalat (frá Vegamótum er mér sagt)

-fyrir sex-

Sex kjúklingabringur, skornar í strimla, kryddaðar með salti og pipar og steiktar á pönnu.

Salatblanda að eigin vali.

Sósa
1 dós kókosmjólk
1 bolli salthnetur
½ ferskt chili
2 msk. sítrónugras, fínt saxað
5 hvítlauksgeirar
salt eftir smekk
2 msk. soyasósa
1 bolli púðursykur
1/2 búnt coriander
3 lauf kaffírlime (fæst í austurlenskum búðum)
kanelduft á hnífsoddi
1/2 paprika, smátt skorin
fennelduft á hnífsoddi
1/2 rauðlaukur smátt skorinn
cayenne pipar á hnífsoddi


Allt hráefnið, sem á að fara í sósuna, er sett saman í pott ásamt tveimur dl af vatni og soðið í hálfa klukkustund.
Í lok suðutímans er maukað eilítið með töfrasprota og saxaðar niður hneturnar og laukurinn.
Salatblöndunni er síðan skipt á sex diska og kjúklingastrimlunum raðað ofan á.
Að síðustu er sósunni hellt yfir.
Borið fram með hvítlauksnanbrauði.

4 comments:

Sigrun said...

Mmmm.. lítur girnilega út..
Hei ein spurning: á maður að saxa laukinn og hneturnar og bæta þeim við bara rétt í lokin. Eða á maður að sjóða það með öllu klabbinu?

thury said...
This comment has been removed by the author.
thury said...

Hef skipt um skoðun. Best er að sjóða þetta allt saman frá upphafi til enda. Hneturnar gefa svo mikið bragð, það er ef til vill betra að saxa þær aðeins fyrirfram þar sem töfrasprotinn minn var ekki að gera góða hluti í lokin. Of mikið skvetterí.

Luv Þ x

María said...

Við Fannz dúndruðum öllu í pottinn og beittum svo töfrasprotanum á allesammen. Útkoman hreint út sagt æðisleg. Þetta á eftir að vera eldað oft hér eftir. Og þetta er ekkert mál að gera.