Þetta er sko uppáhaldsmaturinn hans Matta. Ég elda hann alltaf þegar ég vil vera góð við kallinn. Ég fékk uppskriftina upprunalega frá sænska sjónvarpskokkinum Tinu en er búin að laga hana til og gera hana mína. Með kjúklingabringum er hún alveg namminamm.
fyrir 2
2 kjúklingabringur
ostur
skinka
dijon sinnep
1 egg
hveiti
brauðmylsna (eða svona ströbröd, hvað það er nú á íslensku)
salt og pipar
- fletjið út kjúklingabringurnar eins mikið og þið getið. Ég nota kjöthamar en það má nota kökukefli og berja þær niður.
- leggið á þær ost (okkur finns gott að hafa glás af osti), skinku og smyrið vel með dijon sinnepi. Brjótið saman til helminga og reynið að halda góssinu sem mest inni.
- setjið í 3 skálar: 1 egg sem búið er að hræra saman, smá hveiti og smá brauðmylsnu.
- nú takið þið bringurnar og dýfið þeim fyrst í eggjaskálina, svo í hveitiskálina, loks í brauðmylsnuskálina. Þekið vel. Kryddið með salti og pipar.
- þá hita ég pönnuna, set smá smjör og ólífuolíu á pönnuna. Þegar hún er orðin heit set í kjúllana á pönnuna. Steiki svona 2 mínútur á hvorri hlið.
- Loks setur maður bringurnar inní ofn þar til að þær eru done. Það tekur svona 20-30 mínútur.
Sunday, April 1, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Maður þyrfti nú að prófa þetta. Get vel ímyndað mér að Jussi slefi yfir svona kjúklingasteik.
Annars held ég að í daglegu tali sé brauðmylsna venjulega kallað rasp ;)
Post a Comment